Mottuleiga

Það getur verið áskorun að halda anddyri snyrtilegu og hreinu þar sem fólk kemur mikið og fer á landi eins og Íslandi. Í vætusömum veðrum geta anddyri látið ansi mikið á sjá þar sem er mikill umgangur inn og út. Góð motta getur breytt miklu og gripið það mesta sem berst inn með skóm. Hægt er að fá mottur leigðar hjá okkur í öllum stærðum og gerðum. 

Innifalið í þjónustu

Það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af skítugum mottum þegar leigðar eru mottur hjá okkur, í Þvottahúsi Vesturlands, því við sjáum um allt viðhald. Við komum á staðinn, skiptum mottunum út fyrir hreina og hreinsum þessa skítugu. Hversu títt er samkomulagsatriði út frá þörfum og leiguverðið sniðið eftir því. Þetta getur verið vikulega, á tveggja vikna fresti og allt upp í mánaðarlega. 

Svona virkar mottuleigan

Þú hefur samband

Hér fyrir neðan getur þú sent okkur línu. Við höfum samband og þú velur þér mottu.

Mottan kemur til þín

Við sjáum um að útvega mottuna og koma með hana til þín.

Þú þarft ekki að spá í þetta meira

Við sjáum um að koma reglulega og djúphreinsa mottuna samkvæmt þeirri áætlun sem þú valdir þér.

Við sækjum og sendum

Við bjóðum upp á sendingarþjónusta til fyrirtækja og gististaða. Hafðu samband og fáðu tilboð. 

Opnunartímar