Hér til hliðar getur þú pantað í lín- og dúkaleigu. Í felliglugga getur þú valið stærð á pökkun í línleigu en ef þú velur dúkaleigu eða aukahluti í línleigu þá þarf að taka fram fjölda og stærðir þar sem við á í fyrirspurn. Við höfum svo samband við þig í beinu framhaldi.
Ekki hika við að senda okkur spurningar ef þú finnur ekki svar hér til hliðar og við svörum þér eins fljótt og auðið er.
Flest verkefni eru tilbúin innan 48 klukkustunda, það fer þó eftir magni og tegund textílsins. Við látum þig vita ef um sérverkefni eða lengri afgreiðslutíma er að ræða.
Við hreinsum meðal annars jakkaföt, kjóla, yfirhafnir, ullarflíkur, sængur, gardínur og fleiri viðkvæmar flíkur samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
Við gerum okkar allra besta til að fjarlægja bletti og notum sérhæfðar aðferðir eftir tegund efnis og bletts. Sumir blettir geta þó verið orðnir varanlegir ef þeir hafa setið lengi eða fengið ranga meðferð.
Já, við þjónustum fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Við bjóðum meðal annars upp á alls kyns þvott og leigu á líni og mottum og öðrum eftir þörfum hvers rekstrar. Þess má geta að við bjóðum bæði upp á að sækja og senda í fyrirtækjaþjónustunni.
Ef flíkin er merkt „Dry Clean Only“ mælum við með fatahreinsun. Ef þú ert óviss geturðu alltaf komið með flíkina til okkar og við ráðleggjum þér bestu meðferðina.