Þvottaþjónusta

Við sjáum um þvott af öllum stærðum og gerðum, allt frá heimilisþvotti upp í sængur og koddaþvott. Hægt er að koma með þvott til okkar en eins bjóðum við upp á að sækja og senda þegar um mikið magn er að ræða. Við þjónustum t.d. mörg hótel með línþvott sem og sængur og koddaþvott en einnig fyrirtæki með þvott á alls konar rekstrarþvotti eins og t.d. tuskum og vinnugöllum svo eitthvað sé nefnt. 

Verðskrá

Við þvoum þvott með öflugum vélum og gæða þvottalegi og þú færð hann hreinan, pressaðan og samanbrotinn í þínar hendur.

  • Úlpa – 2.500 kr
  • Dúnúlpa – 4.000 kr
  • Flíspeysa – 1.200 kr
  • Lopapeysa – 2.000 kr
  • Kuldagalli – 3.500 kr
  • Slæða/trefill – 1.000 kr
  • Dúkur 0-2 m – 1.100 kr
  • Dúkur 2m+ – 1.600 kr
  • Servíettur – 200 kr stk.
  • Sæng – 2.500 kr
  • Sæng tvöföld – 3.500 kr
  • Svefnpoki – 1.200 kr
  • Koddi – 1.000 kr
  • Gluggatjöld – 1.400 kr
  • Yfirdýna – 2.000 kr
  • Yfirdýna tvöföld – 3.000 kr
  • Rúmteppi – 1.500 kr
  • Rúmteppi tvöfalt – 2.500 kr
  • Þvottur í 10 kg vél – 3.000 kr

Þjónustuleiðir

Rekstrarþvottur

Við tökum að okkur að þvo alls kyns þvott er tengist rekstri, hvort sem um er að ræða tuskur, vinnufatnað eða annað. Sækjum og sendum.

Hótelþjónusta

Við þjónustum bæði hótel og alls konar gistiþjónustu með bæði sængur- og koddaþvott sem og línþvott sem getur verið rúmföt, handklæði, sloppar og tuskuþvottur. Sækjum og sendum.

Lín- og dúkaleiga

Vantar dúka í veisluna? Eða ertu kominn í bústað og gleymdir sængurverum og handklæðum? Ekki örvænta, við getum hjálpað.